top of page
Image by Quimi Font

Sérferð - Tækniskólinn

Gönguferð frá Santiago Del Teide Til Masca

Dagsetningar: 28.maí & 29.maí

​Tími: 09:00 - 16:00

Vegalengd: 10 km

Hækkun: 350m (+80m Pico Verde)

Lækkun: 700m

Göngutími: 3,5 - 4 kls.

Heildar tími ferðar:  7 kls

Erfiðleikastig:   Hófleg ferð, nauðsynlegt að fólk sé sæmilega á sig komið líkamlega og hafi einhverja reynslu af gönguferðum.

Verð: 

Fullorðnir: 70€

Muna! Að taka með nóg af vökva, eitthvað snarl, höfuðfat, sólarvörn og klæðast viðeigandi skóm.

Innifalið:

Íslenskur fararstjóri

Fararskjóti til og frá hóteli

Lýsing á ferð:

"Sérferð" Við sækjum ykkur á hótelið og þaðan liggur leiðin upp til Santiago del Teide, þar sem gangan byrjar í um 1000 metra hæð. Gengið er upp í Teno fjöllin og er hækkunin sem er um 350 metrar, er nánast öll fyrstu 4 km. Þá blasir við magnað útsýni yfir Teno fjallgarðinn og Masca dalinn. Ef aðstæður leyfa er möguleiki á að fara á toppinn á Pico Verde sem er um 80 metra hækkun í viðbót og ekki er útsýnið verra þaðan. Síðan göngum við niður fjallhrygginn í áttina að Masca þorpinu þar sem gangan endar. Við verðum svo sótt kl 16:00 í þorpið. 

Heildar kílómetrafjöldi göngunnar er 10 km og tekur sjálf gangan um 3,5 til 4 klukkustundir. Ferðin í heild er um 7 klukkustundir.

Muna að taka með taka nóg af vökva, eitthvað snarl, höfuðfat, sólarvörn og klæðast viðeigandi skóm!

 

Gönguferð

7 kls - 70€

bottom of page