Teide
-
Sérpöntun
-
Heildar tími ferðar: 9-10 kls
-
Lengd: +/-12 km
-
Hækkun: 1350m
-
Göngutími: +/- 6 tímar
-
Erfiðleikastig: Erfið
Innifalið:
-
Íslenskur fararstjóri
-
leiðsögumaður frá þjóðgarðinum
-
Sérstakt leyfi til að ganga á tindinn
-
Miði í kljáfinn (niður)
-
Fararskjóti til og frá hóteli
Þessi ferð er aðeins í boði sem sérpöntuð einkaferð.
Verð:
-
Fyrir 2: 450€ per mann
-
Fyrir 3: 350€ per mann
-
Fyrir 4: 300€ per mann
-
Fyrir 5: 275€
-
Fyrir 6: 250€
-
Fyrir 7: 225€
Tenerife 202
9 klst - 90€
Fararstjóri
Drykkir
Íslenska
Rúta
Hádegismatur
Lýsing á ferð:
Fyrsta stopp er höfuðborgin Santa Cruz de Tenerife. Við keyrum sem leið liggur að markaðnum og tökum til við að skoða hann, stoppum þar í um hálftíma. Í framhaldi að því þá höldum við í átt að kirkjunni, Iglesia de la Consepsion, sem hefur að geyma hinn heilaga kross, Santa Cruz, sem kom á land 1494. Kíkjum örlítinn hring í miðbænum og fáum smá innsýn inn í borigna sjálfa.
Því næst keyrum við sem leið liggur til Puerto de la Cruz á norður Tenerife sem var aðal ferðamannastaðurinn áður en suðrið opnaði fyrir ferðamenn á áttunda áratugnum. Dámsamleg borg með margar fallegar byggingar frá 16. , 17., og 18. öldinni. Yndislegt að ganga þar um og virða fyrir sér byggingarnar og stemninguna í borginni.
Við höldum svo í hádegismatinn um kl 14:00 Monistario í úthverfi Puerto de la Cruz. Léttur hédgisverður að hætti heimamanna í dásamlegu umhverfi.
Að lokum höldum við svo í þjóðgarðinn og virðum fyrir okkur það náttúruundur. Sjáum Teide í návígi og skoðum sömuleiðis Garcia klettana. Algjörlega magnað að skoða þetta umhverfi.
Að því loknu höldum við til baka í gegnum Chio og mjökum okkur í átt að hótelunum okkar.
Þessi ferð tekur um 9 klst og stundum allt að 10 klst. Ath að við göngum um 9000 - 10000 skref í ferðinni.
ATH: Við sækjum og skilum á Hótel í Los Cristianos, Las Americas og Adeje (þó ekki vestur af La Caleta).
Tenerife 202
9 - 10 klst - 90€