Tenerife
Tenerife
Tenerífe er stærst og fjölmennust Kanaríeyja sem tilheyra Spáni og liggja við strönd Vestur-Afríku í Atlantshafinu. Tenerífe er jafnframt fjölmennasta eyja Spánar. Höfuðborg eyjarinnar er Santa Cruz de Tenerife. Flatarmál Tenerífe er 2.034 km² til samanburðar er Ísland 103.000 km². Og er eyjan í laginu eins og þríhyrningur
Ísland - Tenerife
Þetta er stærð Íslands vs allar Canary eyjarnar.
Stærð:
Kanarí eyjarnar: 7,500 km2
Tenerife: 2,034 km2
Ísland: 102,775 km2
Vatnajökull: 7,900 km2
Íbúar:
Íbúar Kanarí eyjana: 2,153,389
Íbúar Tenerife: 904,856
Íbúar íslands: 364,260
Aðmíráll Nelson
Horatio Nelson, sem er betur þekktur sem aðmíráll Nelson, reyndi að ráðast inn í Santa Cruz de Tenerife 22. júlí 1797, innrásinn var hrakinn á bak aftur og Nelson var sigraður þann 25. júl. Í þessari missheppnuðu innrás missti Nelson handlegginn.
Stjörnuathugunarstöðin á Teide
Í 2.390 m hæð er hin heimsfræga Teide stjörnustöð. Landfræðileg staðsetning þess, ásamt tærum, ómenguðum himni, hafa stuðlað að því að Observatorio del Teide er orðinn einn af bestu stöðum í heimi til að rannsaka Næturhiminninn. Og þar eru staðsettir bestu sólarsjónaukar í Evrópu.
Fáni
Fáni Tenerife er sá sami og Skotlands, blár bakgrunnur og hvítur skákross. Ein af ástæðunum sem settar eru fram fyrir þessu er að verndardýrlingur Tenerife er St. Andrew ... eða á spænsku, San Andres er líka verndardýrlingur Skotlands... þess vegna eru fánar St Andrew notaðir bæði fyrir Skotland og Tenerife.
El Teide
-
El Teide er hæsti punktur Spánar.
-
El Teide er hæsti punktur yfir sjávarmáli í af öllum eyjum Atlantshafsins.
-
El Teide er 3. hæsta eldfjall jarðarinnar.
-
El Teide er virk eldfjall.
-
El Teide var nefnt á heimsminjaskrá UNESCO þann 28. júní 2007.
-
Nýjasta gosið var árið 1909 í El Chinyero sprungunni í norðvestur Santiago gjánni.
-
El Teide er mest heimsótti þjóðgarðurinn á Spáni og Evrópu með meira 3 milljónir gesta á ári.
-
Nafn eldfjallsins var eldfjallið Echeyde fyrir landnám Spánverja á Tenerife árið 1496.
-
El Teide þjóðgarðurinn er vinsæll rannsóknar staður vegna þess hve mikill líkindi eru milli hans og umhvers aðstaðna og jarðmyndana á Mars .
-
Yfir 70 tegundir af hryggleysingjum eiga heimilli í þjóðgarðinum sem aðeins finnast þar.
-
Mesti skuggi heimsins sem kastast á sjóinn er af El Teide. Gestir og ferðamenn klifra upp á topp eldfjallsins við sólsetur til að verða vitni að þessum einstaka fullkomlega þríhyrningslaga skugga.
-
Yfir 70 tegundir af hryggleysingjum eiga heimilli í þjóðgarðinum sem aðeins finnast þar.
-
Mesti skuggi heimsins sem kastast á sjóinn er af El Teide. Gestir og ferðamenn klifra upp á topp eldfjallsins við sólsetur til að verða vitni að þessum einstaka fullkomlega þríhyrningslaga skugga.
El Drago
Á Tenerife er gríðarstórt og mjög gamalt tré - áætlanir eru frá 650 til 3.000 ára! Fullyrðingar eru um að það sé elsta tré jarðarinnar. Tegundin fær nafn sitt af rauðlituðu plastefni sem seitlar úr því ef lauf eða börkur eru skorin, áður var það talið þurrkað dreka blóð sem hafði læknandi eiginleika.
Á Tenerife er stærsta og elsta lifandi eintakið af Dreka Tré Það er í Parque del Drago, Icod de los Vinos á Tenerife. Það er um 20–21 metrar á hæð og er um 20 metra ummál. Talið er að það vegi um 140 tonn . Þegar það blómstraði árið 1995 var það með um 1.800 blómstrandi greinar og þyngd hans jókst um 3,5 tonn á ávaxtatímabilinu.
Þetta merkilega tré Skoðum við í Hringferðinni okkar"
Shakespeare
Vitað var að Shakespeare líkaði mjög sopinn af kanarísku víni. Reyndar nefndi hann það í 2 leikritum sínum „The Merry Wives of Windsor“ og „Henry IV“. Hann var talinn fá tunnu af víni frá Malmsey (Malvasia) á hverju ári sem hluti af launum sínum… var þetta fyrsta auglýsingin um vöru staðsetningu "product placement"?
ATH: þið fáið að bragað á þessu víni í einni af ferðunum okkar, MATUR OG VÍN.
Christopher Columbus
Þann 12.08.1492 stoppaði floti hans undan strönd La Gomera til að endurnýja birgðir með vistum og vatni í síðasta sinn áður en hann fór yfir Atlantshafið. Margir heimamenn, voru ráðnir sem sjómenn fyrir flota hans og stóðu hugrakkir við hlið hans þegar Ameríku fannst (í annað sinn, því við Íslendingar vorum löngu búnir að finna Ameríku).
Sagt er að Ameríka hafi verið vígð með vatni frá La Gomera.