top of page
shutterstock_2214006691.jpeg

GARACHICO

Garachico er viðurkennt sem eitt af fallegustu þorpum Spánar

GARACHICO

  • Dagsetning: Fimmtudagar

  • ​Tími: 09:00 - 15:00

  • Heildar tími ferðar: 6 klst.

  • Verð:

    • Fullorðnir: 115€

    • 6-12 ára: 70€

    • 0-5 ára: 0€

Innifalið:

  • Veitingar

  • Íslenskur fararstjóri

  • Fararskjóti til og frá hóteli

  • Lámarks þáttaka er í þessa ferð (lágmark 4) þurfa að vera skráðir til þess að ferðin verði farinn).

Garachico

6 klst. - 115

Biðlisti / Aukaferð

Ef það er fullbókað í ferðina getur þú nú skráð þig á biðlista. Ef pláss losnar munum við hingja í þig og bjóða þér að koma með. Ef nægur fjöldi næst á biðlista setjum við upp aukaferð. Hér gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.

Fararstjóri

Drykkur

​Íslenska

Rúta

Hádegismatur

Þetta er falleg og fróðleg ferð yfir Teno-fjöllin til Garachico, eins af mest heillandi og sögufrægustu bæjum Tenerife. Garachico hefur hlotið opinbera viðurkenningu sem eitt af fallegustu þorpum Spánar.

Garachico var eitt sinn mikilvægasti verslunar- og hafnarbær Tenerife. Árið 1706 rann hraun frá Trevejo-eldfjallinu yfir hluta bæjarins og eyðilagði gömlu höfnina. Í leiðsögninni heyrum við samfellda sögu af því hvernig Garachico varð auðugur hafnarbær, hvernig eldgosið breytti framtíð hans og hvernig hraunið mótaði strandlengjuna sem við sjáum í dag.

Ferðin tekur um sex til sex og hálfa klukkustund og sameinar stórbrotið landslag, áhugaverða sögu, góðan mat og frjálsan tíma.

Við sækjum farþega á hótelin milli kl. 09:00 og 09:30 og leggjum síðan af stað yfir Teno-fjöllin. Á leiðinni njótum við fjölbreytts fjallalandslags og stoppum á fallegum útsýnisstað þar sem gefst tími til að taka myndir og njóta umhverfisins.

Um kl. 11:00 komum við til Garachico, þar sem íslenskur fararstjóri tekur á móti hópnum. Næsta klukkutímann röltum við saman um gamla bæinn og kynnumst sögu hans. Við skoðum meðal annars Plaza de la Libertad, Santa Ana-kirkjuna, gömlu kaupmannahúsin, Puerta de Tierra og virkið Castillo de San Miguel.

Að leiðsögn lokinni fá gestir eina klukkustund til að njóta Garachico á eigin vegum. Þá er tilvalið að rölta um fallegar steinlagðar götur bæjarins, skoða verslanir, fá sér kaffibolla eða ganga niður að náttúrulaugunum El Caletón.

Klukkan 13:00 hittist hópurinn aftur og við njótum saman góðs hádegisverðar. Að máltíð lokinni leggjum við af stað til baka og áætluð heimkoma á hótelin er milli kl. 15:00 og 15:30.

Þetta er notaleg ferð fyrir alla sem vilja upplifa stórbrotið landslag Teno-fjallanna og kynnast sögu, menningu og einstökum sjarma Garachico.

Persónulegri ferð – betri upplifun
Ferðin er farin í litlum og þægilegum níu manna bílum. Hóparnir eru því fámennir, stemningin afslappaðri og allir fá persónulegri leiðsögn. Þetta gerir ferðina bæði þægilegri og skemmtilegri og gefur farþegum meira svigrúm til að spyrja spurninga og njóta upplifunarinnar.
Ferðin verður einnig í boði fyrir stærri hópa og hægt er að aðlaga hana að þörfum hvers hóps.

Einkaferð

Viltu fá þessa ferð sem einkaferð?
Bókaðu ferðina sem einkaferð fyrir hóp eða fjölskyldu. Einkaferðir er mjög góður kostur sem veitir meira fresli og möguleikan á að  aðlaga ferðina að eigin óskum.

 

Takk fyrir, þið munuð heyra frá okkur á næstu dögum.

Garachico

 115€

bottom of page