top of page

ENDURHLAÐA
LÆRA
TENGJAST
NJÓTA
Byggt á reyndri þekkingu og aðferðum til að efla seiglu í starfi
20 klst. viðurkennd fræðsla sem eflir þig í starfi og styrkir faglega sjálfsmynd.
Kynnast öðrum hjúkrunarfræðingum, deila reynslu og byggja upp sterkt tengslanet.
Njóttu lífsins, góðs veðurs og endurnærandi umhverfis á fallegri eyju.
SÉRSNIÐIN FERÐ FYRIR HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Í samstarfi við marga hjúkrunafræðinga höfum við sett saman þessa ferð með ykkar þarfir í huga. Markmiðið er að styrkja ykkur í starfi og lífi með nýjustu þekkingu, hagnýtum verkfærum og tíma til að endurhalað.
Starfið er krefjandi - andlega, líkamlega og oft undir gríðarlegri pressu. Þess vegna er þessi ferð hönnuð til að veita ykkur bæði faglegan ávinning og persónulega vellíðan.
NÁMSKEIÐIÐ ER SÉR SMÍÐAÐ Í SAMSTARFI VIÐ

Þetta náskeið er hannað í samatarfi við virta sálfræðistofuna NeuroFamily með þarfir íslenskra hjúkrunafræðinga í huga.
Professional Resilience and Sustainable Work Program for Nurses
Psychological Training to improve Work Activity and Prevent Burnout.
20 klst. vottað námskeið sem styrkir seiglu, bætir starfsánægju og gefur þér verkfæri til að standa vörð um eigin vellíðan í krefjandi starfi.

Sterkari saman!
Frábært tækifæri til að kynnast öðrum hjúkrunarfræðingum, deila reynslu, byggja upp meiri þekkingu og auka tengslanet.
DAGASKRÁ FERÐAR
Dagur 1
Brottför frá íslandi
-komið til Tenerife
og innritun á hótel

Dagur 2
Andlegar áskoranir í starfi.

Dagur 3
Heilabilun og Krefjandi hegðun

Dagur 4
Samskipti við aldraða og aðstandendur

Dagur 5
Fagleg mörk, teymi og öryggi

Dagur 6
Seigla og innleiðing í starfi

Dagur 7
Frjálsdagur

Dagur 8
Heimferð með
nýja orku í
farteskinu


Fararstjóri
Auðunn Bergsveinsson býr á Tenerife og sér um að skipuleggja og stýra ferðunum okkar. Hann hefur búið á eyjunni í fjögur ár og varð fljótt ástfanginn af náttúrunni, fjölbreytninni og lífinu þar.
Hann hefur tekið á móti yfir 1.000 kennurum í endurmenntunarferðum frá tugum skóla og þekkir því vel hvað þarf til að ferðin gangi vel. Auðunn leggur metnað sinn í persónulega móttöku og vel skipulagða upplifun sem uppfyllir þarfir þátttakenda og kröfur verkalýðsfélaga.
Í frítíma sínum nýtur hann þess að ganga um fjöll Tenerife og hefur farið um flest þeirra. Þegar hann er ekki á göngu finnurðu hann gjarnan á padelvellinum – eða á golfvellinum.
.png)

SAMÞYKKT FRÆÐSLUFERÐ
Fræðsluferðin og námskeiðið hafa verið samþykkt af FÍH sem styrkhæft verkefni og uppfylla faglegar kröfur Starfsþróunarseturs FÍH.
Félagsfólk FÍH getur því sótt um styrk vegna námskeiðsgjalds, flugs og gistingar samkvæmt gildandi reglum sjóðsins.
Við sendum öllum þátttakendum nauðsynleg gögn sem þurfa að fylgja styrkumsókninni, þar á meðal staðfestingu á þátttöku, ítarlega námskeiðslýsingu, dagskrá, upplýsingar um fræðsluaðila og reikninga eða greiðslustaðfestingar eftir því sem við á.
Styrkupphæð hvers þátttakanda ræðst meðal annars af sjóðsaðild, iðgjaldagreiðslum og fyrri styrkjanotkun. Þátttakendur þurfa sjálfir að senda umsóknina og tilskilin fylgigögn til FÍH.

bottom of page


