Lomo Molino
Vínsmökkun frá fimm mismunandi framleiðendum , fræðsla og góður matur í frábæru umhverfi fyrir norðan.
Lomo Molino
-
Tími: 17:00 - 22:00
-
Aldurstakmark: 18 ára
-
Verð: 130€
Innifalið:
-
4 rétta kvöldverður
-
Vín og Drykkir
-
Íslenskur farastjóri
-
Fararskjóti til og frá Hóteli
Lomo Molino
130€
Langar þig að smakka og fá kynningu á vínum frá Tenerife ?
Við keyrum yfir fjöllin yfir á norðurhluta eyjarinnar og fræðumst um sögu Tenerife á leiðinni. Áfangastaður okkar er veitingastaðurinn Lomo Molino í bænum El Tanque en þar er magnað útsýni yfir Garachico og nágrenni.
Við skálum í Cava og njótum útsýnisins sem staðurinn býður upp á. Við smökkum vín frá fimm vínframleiðendum og kynnumst muninum á vínum eyjarinnar. Einnig verður farið vel í gegnum sögu vínframleiðslu á Tenerife og vegferð Spánverja á eyjunni. Kvöldverðurinn er ekki af verri endanum en við njótum hans við útsýnisglugga veitingastaðarins.
Matseðillinn er ekki af verri endanum og er eftirfarandi:
-
Hráskinka og ostar (Jamon serrano iberico y quesos)
-
Salat að hætti hússins
-
Saltfiskur - Þorskhnakkar frá Íslandi
-
Svínalund af Cerdo negro
-
Sítrónu búðingur að hætti hússins er í desert ásamt Barraquito (Cremoso de limón y barraquito)
Með matnum er boðið upp á:
Rautt, hvítt, rósa, gos og bjór. Svo er möguleiki á vatni líka :-) (Vino, aqua, refresco, cerveza)
Njótum góðra vína og matar, eigum góða kvöldstund norðan megin á eyjunni í stórfenglegu útsýni.
ATH: lágmarks þátttaka í ferðina eru fjórar persónur.
Lomo Molino
130€