SANTIAGO DEL TEIDE TIL MASCA

Matur & Vín
Ný og uppfærð útgáfa af þessari vinsælu ferð!
Enn magnaðri upplifun fyrir bragðlaukana
Matur og Vín
-
Dagsetning: Föstudaga
-
Tími: 11:00 - 18:00
-
Heildar tími ferðar: 7 klst.
-
Aldurstakmark: 18 ára
-
Verð: 115€
Innifalið:
-
Fjagra rétta máltíð
-
Ýmis vín með matnum
-
Íslenskur fararstjóri
-
Fararskjóti til og frá hóteli
Matur og Vín
7 kls - 115€
Íslenskur Fararstjóri
Vínsmökkun
Skoðunarferð um vínekru
Rúta til og frá hóteli
4. rétta matseðill
Ný útgáfa af einni af vinsælustu ferðum Tenerife Ferða
Langar þig að upplifa Tenerife í gegnum mat, vín, menningu og fallegt landslag? Þá er Matur & Vín ferðin fyrir þig.
Við byrjum á því að sækja þig beint á hótelið og höldum síðan af stað í þægilegum bíl með íslenskum fararstjóra. Við keyrum hraðbrautina beina leið að Bodegas Monje, einni þekktustu víngerð Tenerife.
Þegar við komum á Bodeguna (vínekruna) förum við strax í áhugaverða ferð um víngerðina og fáum við innsýn í vínrækt á Tenerife og fáum að kynnast sögu og hefðum víngerðarinnar.
Eftir skoðunarferðina er komið að uppáhalds hluta margra – vínsmökkun og svo matur. 🍷
Við setjumst niður í notalegu umhverfi og njótum úrvals vína frá Bodegas Monje áður en borinn er fram glæsilegur kanarískur hádegisverður.
🍽️ Matseðill
-
Forréttur
-
Úrval af brauði og áleggi
-
Vatnakarsesmjör, almogrote-ostamauk og chorizo-pylsa frá La Palma
-
„Tía Lola“ kjúklingabaunir
-
-
Fyrsti réttur
-
Grænmetiskrem með fjögurra korna gofio
-
-
Aðalréttur
-
Viðareldað vínalæri með kartöflum, sætu grænmeti og grænu mojo-sósu með möndlum.
-
-
Eftirréttur
-
Kanarískur vanillubúðingur með vínsætri svampköku og Hollera-sultu.
-
Kaffi og brauð
-
Með matnum er boðið upp á ½ flösku af víni á mann, þar sem hægt er að velja úr úrvali hússins, bæði hvítvín, rósavín og rauðvín.
Matur, vín og menning... og aðeins meira vín.
Víngerðarfjölskylda frá árinu 1750
Monje-fjölskyldan hefur verið í víngerð allt frá 1750 – í um 276 ár. Þetta hefur gengið í gegnum kynslóðir og Felipe Monje, sem rekur víngerðina í dag, er fimmta kynslóðin í fjölskyldunni.
Þannig er þetta ekki bara fyrirtæki sem byrjaði sem ferðamannastaður – vínræktin var hluti af fjölskyldulífinu löngu áður en hugtakið „wine tourism“ varð til. „Þegar við erum að smakka þessi vín erum við í raun að smakka hluta af fjölskyldusögu sem nær meira en 275 ár aftur í tímann.“
Monje ræktar meðal annars Listán Negro, Listán Blanco, Negramoll, Tintilla, Vijariego Negra og Marmajuelo.
Það áhugaverða er að þau vinna einnig með vínberjategundir sem eru fyrir phylloxera-smitið, þ.e. gömul erfðalína sem hefur varðveist frá fyrri tíð.
























