Langar ykkur í fjör í sólinni og sjónum?
Einstaklega skemmtilegur lúxus bátur sem tekur ykkur í 4ra tíma einkasiglingu og með bátnum eru m.a. kajak, paddle board, jet-ski o.fl. Einnig er í boði stór uppblásin rennibraut en þá er farið á ákveðinn stað og haldið til þar (ekki siglt með rennibrautina). Báturinn tekur að hámarki 12 manns.
Fyrir stærri hópa (allt að 24) er líka hægt að leigja þennan bát og annan með (sjá "Glæsisigling") þar sem sá bátur færi 2 ferðir með helming af hópnum í senn til að skoða hvali og höfrunga en svo væru þeir saman (nánast hlið við hlið) ca. 2klst. af þeim 4 sem siglingin stendur yfir. Skemmtilegur möguleiki fyrir stærri hópa.
Innifalið:
Glæsilegir tapas réttir
Drykkir (Áfengi, Gos&vatn)
Snorkl búnaður
Kayak
Jet-ski
Paddle-board
Uppblásin rennibraut
Hvað á maður að koma með?
Handklæði
Sólarvörn
Sólgleraugu og jafnvel hatt eða derhúfu
Eftir bókun munuð þið fá sendan Voucher (aðgöngumiða) og frekari upplýsingar. Athugið að afgreiðsla fer fram á skrifstofutíma. Ef bókað er eftir klukkan 16:00 verður miðinn ekki sendur fyrr en eftir klukkan 10:00 daginn eftir.
top of page
No hay reseñas todavíaComparte tu opinión.
Deja la primera reseña.
bottom of page