Gönguferð um El Chinyero
-
Dagsetning: Miðvikudaga
-
Tími: 10:00 - 15:00
-
Vegalengd: 8 km
-
Göngutími: 2,5 - 3 kls.
-
Heildar tími ferðar: 5 kls
-
Erfiðleikastuðull: Þetta er auðveld og skemmtileg ganga fyrir alla fjölskylduna.
-
Verð: 65€ (6 - 12 ára 50€) (0 - 5 ára frítt)
Muna! Taka nóg af vatni. Höfuðfat. Sólarvörn. Klæðast viðeigandi skóm!
Innifalið:
-
Íslenskur fararstjóri
-
Fararskjóti til og frá hóteli
EL Chinyero
5 kls - 65€
Athugið gera þarf sér bókun fyrir börn (6-12 ára)
Lýsing á ferð:
Þið verðið sótt á hótelið og þaðan er ferðinni heitið upp í þjóðgarðinn sem er í 1350 metra hæð og þar sem gangan byrjar.
Gengið er hringinn í kringum El Chinyero og er hækkunin á leiðinni um 200 metrar í gífurlega flottu umhverfi, þar sem hraun og furuskógar eru í aðalhlutverki og með útsýni yfir suður og vestur Tenerife.
Á leiðinni til baka er stoppað á veitingastað sem státar af flottu útsýni yfir suðurhluta eyjarinnar.
Þetta er auðveld og skemmtileg ganga fyrir alla fjölskylduna.
Heildar lengd göngunnar er um 8 km. og tekur sjálf gangan um 2,5 til 3 klukkustundir. Ferðin í heild er um 5 klukkustundir.
ATH: Við sækjum og skilum á Hótel í Los Cristianos, Las Americas og Adeje (þó ekki vestur af La Caleta).
Gönguferð um El Chinyero
5 kls - 65€
Athugið gera þarf sér bókun fyrir börn (6-12 ára)