Skoðunarferð um El Teide
-
Dagsetning: Ekki á dagskrá
-
Tími: 09:00 - 17:00
-
Heildar tími ferðar: 8 kls
-
Kláfurinn: 33€ (Greiðist aukalega).
Verð:
-
Fullorðnir: 85€
-
Börn 6 - 12 ára: 60€ (frítt fyrir yngri)
Muna! Þeir sem ætla upp með kláfnum ættu að hafa hlýjan fatnað með
Innifalið:
-
Veitingar (matur og drykkir)
-
Íslenskur fararstjóri
-
Fararskjóti til og frá hóteli
EL Teide
8 kls - 85€
Athugið gera þarf sér bókun fyrir börn (6-12 ára)
Lýsing á ferð:
El Teide hæsta fjall Spánar, 3718 metrar á hæð, hæsti punktur fyrir ofan sjávarmál í Atlantshafi og þriðja stærsta eldfjall í heimi.
Þessi ferð er nauðsynleg fyrir þá sem leita ekki bara eftir stórbrotnu útsýni, heldur vilja líka upplifa ævintýrið við að fara í 2.350 metra hæð og eiga þar möguleika á að geta farið í einn hæsta kláf sem til er og tekur þig uppí 3.555 metra hæð yfir sjávarmál. Það er val hvers og eins að fara upp með kláfnum en athugið að það þarf að bóka í hann með tveggja vikna fyrirvara og fyrir það þarf að greiða aukalega 33e.
Þetta er mögnuð ferð með frábærri upplifun í óviðjafnanlegu umhverfi uppi til fjalla. Ferðin endar á skemmtilegum veitingastað upp í fjalli þar sem við gæðum okkur á tapas og drykk.
Við sækjum á fyrsta hótel kl 09:00 og síðan liggur leiðin upp í fjall. Höldum fyrst í vestur átt og keyrum upp í þjóðgarðin frá litlum bæ sem heitir Cho, keyrum þar í vestur hlíðum þjóðgarðarins, þar stoppum við og njótum útsýnis yfir Teno fjöllin og í góðu skyggni má sjá vel til La Palma. Við förum um hið dramatíska landslag innan þjóðgarðsins sem sýnir vel að Tenerife er eldfjallaeyja mynduð við langvarandi eldvirkni. Í þessari ferð í þjóðgarð El Teide munu þið njóta fjölbreytts og ólýsanlega landslags þessarar stórbrotnu eldfjallaeyju.
ATH: Við sækjum og skilum á Hótel í Los Cristianos, Las Americas og Adeje (þó ekki vestur af La Caleta).
Skoðunarferð um El Teide
8 kls - 85€
Athugið gera þarf sér bókun fyrir börn (6-12 ára)